Steini Páls Iceland
BreytingarÞorsteinn Pálsson
Núna er ný síða í vinnslu hjá mér því að ég vill vera með aðeins flottari síðu en þetta á meðan ég er úti.Stóri dagurinn!!Þorsteinn Pálsson
Jæja stóri dagurinn rann upp í dag!! Ég fór í fyrsta Solo flugið mitt..!!Það var þannig að ég fór í upphitun með kennara, við tókum 4 snertilendingar og það gekk bara rosalega fínt..
Þegar við vorum komnir undan vindi fyrir 13 fyrir 4 snertilendingu þá kallaði kennarinn í turninn og óskaði eftir full stopp og að fá að taxera uppað skýli, fá svo að senda nemanda í fyrsta sólo.. Það var samþykkt þannig að við tókum full stopp og taxeruðum.. Þegar við komum uppað skílí þá sagði hann mér að nú væri komið að því og að þetta yrði ekkert mál.. Núna ertu þinn eigin herra sagði hann.. Vá hvað það var gaman að heyra þetta.. Ég læsti hurðinni á eftir honum og kallaði á turninn ´´ Turn, Friðrik Teitur Oddur tilbúinn til brottfarar vestan við skýli 1´´ turninn svaraði ´´Friðrik Teitur Oddur Aka Echo yfir 19 og bíða við 13´´ .. Ég svaraði ´´ Aka Echo yfir 19 og bíða við 13´´ Þegar þangað var komið þá sé ég aðra vél fara í loftið og skommu síðar heyrist ´´ Friðrik Teitur Oddur brautarstaða 13´´ Ég svara ´´Brautarstaða 13 Friðrik Teitur Oddur´´ Og þá hugsaði ég VÁ það er komið að þessu mar... Svo kom ´´Friðrik Teitur Oddur heimilt flugtak braut 13 og staðfesta að það eru 3 snertilendingar´´ Ég svara ´´Heimilt flugtak braut 13 og það er staðfest að það eru 3 snertilendingar og fyrsta Sóló.. Svo var ekkert annað en full Power passa að það væri all green og airspeed alive.. Þegar hraðinn datt yfir 60 þá var togað í stýrið og kallinn bara kominn í loftið einn og yfirgefin.. Ekkert smá góð tilfinning.. Ég klifraði á 75 upp í 500ft og þá var beygt til hægri haldið áfram að klifra upp í 800 og þá var beygt aftur til hægri og kallinn kominn undan vindi í 1000ft.. Ég kalla ´´Turn Friðrik Teitur Oddur undan vindi´´ fæ svar ´´ Friðrik Teitur Oddur númer 2 fyrir 13´´ og þá svara ég ´´Nr 2 fyrir 13 og sé traffic´´ svo var ég kominn þvert á brautar enda og þá var bara 1500rpm og 10°flaps og byrjað að lækka.. þegar ég var kominn í 45° horn frá brautarenda þá var bara 20° flaps og beygt... svo var ég kominn á langa loka og FTM eða Friðrik Teitur Magnús á undan mér.. Þá heyrist ´´Friðrik Teitur Magnús Brjóttu af og yfirfljúgðu braut Break break Friðrik Teitur Oddur Brjóttu af og yfirfljugðu braut og takið stefni á Álftarnes.. Ég fór eftir fyrirmælum og flaug þangað og beið eftir að vera kallaður inn.. svo vorum við kallaðir inn og þá gekk allt eins og í sögu.. 2 snertilendingar og lokalending tekin og ég var ennþá í skýjunum þegar ég lenti.. Ég brosti allan hringinn.. Þetta er eitthvað sem maður á aldrei eftir að gleyma..
Svo smá skilaboð.. Ef þú skilur þennan texta þá ertu góður.. :) þetta er fyrir þá sem þekkja þetta eitthvað..
svo byrjaði bóklega námið áðan.. það var rosalega gaman í skólanum.. Ég er bara að fíla þetta...
Jæja ég ætla að fara að legga mig.. þarf að vakna kl 7 í fyrramálið.. lærdómur allan daginn á morgun og svo skóli annað kvöld
Bless
Steini Sterki Pilot :)
Ljósanætur helginÞorsteinn Pálsson
Jæja þá er þessi helgi búin og það er ekkert nema fínt.. Það gerðist margt merkilegt hjá mér um helgina.
Var að keppa í sterkasti maður suðurnesja á föstudaginn og á laugardaginn, það var ekkert nema gaman. Það endaði nú samt þannig að í síðustu þrautinni þá gaf bakið sig og ég fékk far með sjúkrabíl niðrá sjúkrahús og Nonni bróðir þurfti að fara á verðlauna pall fyrir mig.. Þar sem ég varð náttla í 2. sæti.. Má þá ekki kalla mig næst sterkasta mann suðurnesja :)
Já en nóg um það... Ég kíkti smá Hölt um bæinn í gær þar sem ég er haltur eftir þetta.. Og hitti þar vinina og sá flugeldana.. Það var ekkert nema fínt.. Heyrði góða setningu þar sem einn félagi minn sagði ´´það er ekkert mál fyrir steina pál´´ heh bara húmor.. gaman af af þessu..
En núna eru skemmtileg heitin að byrja.. skólinn byrjar á morgun og ég get ekki beðið..
en ég ætla að fara að gera eitthvað..
steini sterki kveður
Ég hérnaÞorsteinn Pálsson
Jæja ég held að það sé kominn tími á eitt blogg eða svo..Núna er margt búið að ské hjá kjellinum.. Það er bara svo margt að ég nenni ekki að hrækja því hérna á bloggið..
Ef þið vitið það ekki nú þegar þá þurfið þið ekkert að vita það :)
En allavegana þá er ég að fara að skella mér í útileigu um heigina.. Ekki leiðinlegt það.. Ætla að skella mér á Danska daga á stykkishólmi.. Þannig að þar verður fjörið.. Fjörið er náttla alltaf þar sem ég er..
Það verður ekki leiðinlegt að lyggja á fellihýsinu sveittur yfir bókunum, fara út í góða veðrið og skoða fólkið á svæðinu..
En allavegana hef ég ekki mikið að segja meira en þetta.. Ég er bara eitthvað hálf tómur eitthvað.. Ég get bullað helling um flug vegna þess að það er það eina sem er í hausnum á mér þessa dagana.. En þið fólk munduð ekki skilja það þannig að ég er ekkert að skella því hingað..
Svo náttla kvet ég alla til að koma á ljósanótt og kvetja kallinn til dáða í krafta keppninni.. Jújú ég var fenginn til að taka þátt í þessu.. Er búinn að skella mér á 2 undirbúnings æfingar með strákunum og það hefur bara gengið þokkalega.. Held ég allavegana.. Eini gallin á þessu er að allir þessir strákar eru einhverjir sem eru búnir að vera að lyfta og æfa sig í einhver ár en svo kem ég óþjálfaður, sko ekkert búinn að lyfta síðan í 10 bekk eða eitthvað, en ég ætla að taka þátt og sjá hvað ég get..
En allavegana þá verður þessi keppni 2 daga.. 2 þrautir á föstudeginum og nokkrar þrautir á laugardeginum þannig að mætið og kvetjið mig og strákana.. Þetta verður auðveldara ef maður heyrir einhvern kvetja.. Gaman af því..
En ég ætla að kveðja í bili..
Stykkishólmur here I come..
Skellið ykkur þangað mar!
Steini OUT
BILUNÞorsteinn Pálsson
Þessi síða er eitthvað að klikka hjá mér.. Það hrannast upp rusl skilaboð á gestabókina mína og í commentin..Í bili þá tók ég út gestabókina þangað til að þetta verður lagað.. Ég sendi stjórnendum bloggar.is e-mail og bað um að þetta væri lagað.. Vonandi skella þeir sér í það bráðlega.. Þannig að þar sem þið erum svo dugleg að commenta og skrifa í gestabókina, NOT.. Þá skellið öllum ykkar hugsunum í commentin þar til að þetta kemst í lag..
Steini farinn að læra aftur..
Og smá fréttir af kjellinum þá sagði kennarinn mér í dag að það væru 2 flugtímar eftir í fyrsta sóló.. Ekki leiðinlegt það..
Steini farinn
nokkur videoÞorsteinn Pálsson
http://video.google.com/videoplay?docid=-8262827577411035359&q=aircraft+crash&pl=truegóð lending :)
http://kvikmynd.is/myndband.asp?id=1093
heh nýja limmann
http://www.flugnet.com/spjall/viewtopic.php?t=175
heh tékkið á hundinum
http://www.flugnet.com/spjall/viewtopic.php?t=205
var aðeins að vafra og datt í hug að skella þessu inn
bless
steini
FlotturÞorsteinn Pálsson
Þessi er alveg útúr kortinuhttp://www.flugnet.com/spjall/viewtopic.php?t=724
tékkið á þessu
kv Steini
VerslunarmannahelginÞorsteinn Pálsson
Jæja verslunarmanna helgin gengin í garð.. Ég bara heima að læra og einhvernvegin sé ekkert eftir því að hafa ákveðið að vera heima og læra.. Það einhvernvegin er gott að chilla bara yfir bókunum og vakna bara ferskur á morgnana og hella sér í lærdóminn.. Svo er allt liðið í vonda veðrinu í eyjum í einhverjum tjöldum og ap krókkna úr klulda en ég er bara heima í þægilega rúminu mínu og að hafa það nice... heh bara gaman af þessu..En allavegana er farinn að læra..
bless
þar til síðar
Steini Pilot
HérnaÞorsteinn Pálsson
Núna ætla ég eitthvað að reyna að hripa niður nokkur orð..
En allavegana þá er ég hættur að vinna og farinn að einbeita mér að náminu.. Jújú kallinn er að fara í flugnám.. Ætla mér að verða flugmaður... Ekki slæmt það.. Enda er ég ekkert nema spenntur fyrir þessu.. Er núna að byrja á rútínunni, fer í rvík kl 8 á morgnana og verð inná bókhlöðu að læra.. Þannig að þið getið fundið mig þar sveittan yfir bókunum.. :) Ég er núna búinn að vera að fljúga á hverjum degi undanfarið og það er ekkert nema gaman... Alltaf að læra eitthvað nýtt enda er þetta ekki hlutur sem er meðfætt.. Aðeins erfiðara en að hjóla hjóli eða keyra bíl og jafnframt mikið skemmtilegra.. Svo er maður náttla líka að vinna í því að reyna að gera sig sætan þar sem maður er kominn á markaðinn og verð seldur hæðst bjóðanda... :)
En nóg í bili ætla að sökkva mér í bækurnar
Steini Pilot kveður
Vá hvað þetta hljómar vel
Bless
....Þorsteinn Pálsson
Jæja ætli að það sé ekki best að skella einu bloggi á þetta hérna...Það er hellingur búinn að gerast hjá mér undanfarið, ég er búinn að segja upp vinnunni og hætti um mánaðarmótin og búinn að kíkja á einn læknir og hann hleypti mér út eftir skoðunina þannig að það hlítur að vera í lagi með mig..
En ég verð nú að segja það að mér er farið að hlakka ekkert smá mikið til að fara að læra... vera bara inn á bókhlöðu allan daginn og læra... Ég er kominn með námsþorsta og það er ekkert nema fínt...
En ég verð að skjótast..
Síðar
Steini
